Árbæjarlaug
Mán.–fös. kl. 6:30–22:00
Lau.–sun. kl. 9:00–21:00
Fylkisvegur 9
110 Reykjavík
Afgreiðslutími sundlauga
Almennir afgreiðslutímar sundlauga eiga við flesta daga ársins. Á jólum, páskum og öðrum almennum frídögum eru afgreiðslutímar aðrir og breytilegir eftir sundlaugum.
Hvað kostar í sund?
Börn (0-15* ára) Frítt
Ungmenni (16 og17 ára)* - 210 kr.
Fullorðnir (18 ára og eldri)** - 1.330 kr.
Eldri borgarar 67 ára og eldri** - Frítt
*Miðað er við 1. ágúst afmælisárið
**Miðað er við afmælisdag
Aðstaða í og við Árbæjarlaug
- 25 metra laug
- Aðgengi í laug fyrir fatlaða
- Barnalaug
- Barnarennibraut
- Eimbað
- Fritt WiFi
- Heitir pottar
- Hlaupaleiðir
- Innilaug
- Kaldur pottur
- Nuddpottur
- Rennibraut
- Sala á sundfatnaði
- Sérklefi
- Strandblak
- Ungbarnaaðstaða
- Útiklefar
- Vaðlaug
- Veitingasala
Aðgengi
Sérklefi og sturta
Aðgengi án þess að þurfa að fara í almenna klefa
Lyfta ofan í laug
Hjólastólaaðgengi að pottum
Hjólastólaaðgengi að laug
Hjólastólaaðgengi að eimbaði
Tenging inni- og útilauga
Göngugrindur
Salerni í klefum, sérklefum og afgreiðslu
Dagskrá
Skólasund og sundæfingar í Árbæjarlaug
Innilaugin er lokuð á eftirfarandi tímum vegna skólasunds og sundæfinga:
Mánudagar | kl. 11:20-13:50 og 16:45-18:00 |
Þriðjudagar | kl. 08:20-11:50 og 16:30-17:55 |
Miðvikudagar | kl. 08:20-10:30 og 16:40-18:55 |
Fimmtudagar | kl. 08:30-11:30 og 17:00-17:40 |
Föstudagar | kl. 09:50-11:50 |
Sundleikfimi í Árbæjarlaug
Sundleikfimi er í boði fyrir öll á eftirfarandi tímum:
Þriðjudagar | kl. 8:30 | inni |
Þriðjudagar | kl. 9:30 | úti |
Fimmtudagar | kl. 8:30 | inni |
Fimmtudagar | kl. 9:30 | úti |
Samflot í Árbæjarlaug
6. mars
3. apríl
1. maí
Strandblak við Árbæjarlaug
Glæsilegir strandblakvellir eru við Árbæjarlaug og Laugardalslaug sem gestir geta nýtt sér endurgjaldslaust. Til að nýta sér vellina þarf að bóka tíma.
Nokkrar reglur gilda um vellina
- Aðgangur að velli greiðist í afgreiðslu eins og um hefðbundna sundferð sé að ræða.
- Mest má bóka 2 klst. í einu.
- Nauðsynlegt er að afbóka völl verði hann ekki notaður.
- Gengið er í gegnum laugarsvæði sunnanvert og í gegnum skóg til að komast að völlunum.
- Ekki er leyfilegt að ganga á skóm yfir laugarsvæði. Fáið bláar plasthlífar í afgreiðslu til að setja yfir skó ef þarf.
- Blakarar koma sjálfir með bolta.
- Að loknum leik skal laga völlinn til með sköfum sem eru staðsettar við vellina.
- Til að lágmarka sand í sturtum og búningsklefum að leik loknum skulu notendur skola af fótum í vatnshana sem staðsettur er á laugarbakka.